ÍslenskaEnska

Eignastýring Virðingar

Virðing verðbréfafyrirtæki býður upp á eignastýringu fyrir stærri fjárfesta. Leitast er við að bjóða upp á persónulega en jafnframt yfirgripsmikla þjónustu við stýringu innlendra sem og erlendra eigna. Lögð er áhersla á ríka upplýsingagjöf og reglulega eru haldnir fundir með þeim viðskiptavinum er njóta þessarar þjónustu.

Aðferðir

Virðing sinnir virkri eignastýringu og eru viðmiðunarvísitölur valdar sérstaklega í samráði við hvern og einn viðskiptavin. Markmið eignastýringar eru að safnið í stýringu skili hærri ávöxtun en viðmiðunarvísitalan án þess að áhætta safnsins sé aukin að ráði. Eignasamsetning verðbréfasafnsins er í stöðugri endurskoðun í takti við breytilegan markað en innan ramma þeirrar fjárfestingarstefnu sem hver og einn viðskiptavinur hefur sett sér.

Þjónusta

Virðing stýrir fjölbreyttum eignastýringarsöfnum fyrir viðskiptavini sína. Eignastýring Virðingar sér um stýringu á innlendum hlutabréfasöfnum, innlendum skuldabréfasöfnum ásamt stýringu á norrænum hlutabréfum. Einnig hefur Virðing komið að gjaldeyrisstýringu fyrir viðskiptavini sína ásamt víðtækri áhættustýringu á heildarsafni lífeyrissjóða.

Starfsfólk eignastýringar

© 2008    | Virðing hf    |    Borgartúni 30    |    3.hæð    |    105 Reykjavík   |    Sími: 520 9800    |     Fax: 520 9801    |     Netfang: virding@virding.is    |    Vefhönnun: Emstrur