Við bjóðum upp á persónulega eignastýringu. Þjónustan er einkum ætluð fjárfestum með umtalsverðar eignir. Virðing hefur annast eignastýringu fyrir viðskiptavini sína frá árinu 2000. Góður árangur á því sviði hefur aukið umfang þjónustunnar ár frá ári.
Við bjóðum yfirgripsmikla þjónustu við stýringu innlendra og erlendra eigna og sérhæfum okkur einkum í eignastýringu fyrir fjársterka aðila, þar sem lágmarksfjárhæð er um 100 milljónir króna.
Viðskiptavinir með eignastýringu hjá Virðingu njóta sveigjanlegrar og persónulegrar þjónustu sérfræðinga okkar, þar sem greiður aðgangur að þjónustunni er grundvallaratriði.
Hjá Virðingu snýst eignastýring um að auka við og varðveita auð viðskiptavina.