Áherslur eignastýringar
Eignastýring Virðingar hefur að markmiði að varðveita og ávaxta eignir viðskiptavina félagsins. Við slík markmið eru langtímaáætlanir meðal frumskilyrða góðs árangurs auk þess sem mikilvægt er að gera sér grein fyrir afstöðu og viðhorfi viðskiptavinarins til áhættu á fjármálamarkaði.
Við mótun langtímafjárfestingarstefnu er mikilvægt að skilgreina áhættustig og væntingar til ávöxtunar þannig að unnt sé að móta stefnu þar sem saman fara raunávöxtun og væntingar viðskiptavinar um ávöxtun.
Virðing leggur ríka áherslu á áhættuvitund viðskiptavina sinna og forðast ómeðvitaða áhættutöku. Mæling á áhættuþoli hefur að markmiði að skilgreina hagstæðustu samsetningu eigna með tilliti til aðstæðna hvers og eins viðskiptavinar. Slík mæling er mikilvæg og forsenda góðs árangurs Virðingar.
