Eignastýring

Við bjóðum upp á persónulega eignastýringu.  Þjónustan er einkum ætluð fjárfestum með umtalsverðar eignir. Virðing hefur annast eignastýringu fyrir viðskiptavini sína frá árinu 2000.  Góður árangur á því sviði hefur aukið umfang þjónustunnar ár frá ári.


Extra Navigation

Eignastýring Virðingar

Eignastýring Virðingar


Þjónusta

Fjárfestar með eignastýringu hjá Virðingu njóta sveigjanlegrar og persónulegrar þjónustu sérfræðinga okkar. Greiður aðgangur að þjónustunni gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum sérsniðnar lausnir í samræmi við óskir og þarfir hvers og eins.


Upplýsingagjöf

Á sviði upplýsingagjafar leggjum við áherslu á ítarlegar, greinargóðar og gagnsæjar upplýsingar.


Markaðir

Eignastýring Virðingar hefur allt frá stofnun félagsins starfað á íslenskum hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði. Árið 2006 hóf félagið virka stýringu á hlutabréfum á norrænu mörkuðunum. Ásamt þessu vaktar eignastýring Virðingar alla helstu verðbréfa- og gjaldeyrismarkaði heims.


Greiningar

Sérfræðingar eignastýringar rýna í uppgjör helstu félaga sem skráð eru á islenskum hlutabréfamarkaði og hafa viðskiptavinir okkar greiðan aðgang að þeim greiningum. Að auki býðst viðskiptavinum félagsins sérstakar greiningar, svo sem verðmat á félögum, úttektir á sjóðum um sameiginlega fjárfestingu auk álits á hverskyns samningum og fjármálagerningum.

Senda


Language Navigation


Leitarorð





Þetta vefsvæði byggir á Eplica