Fyrirtækjaráðgjöf
Virðing veitir fjárfestum og fyrirtækjum alhliða ráðgjöf á sviði fyrirtækjaráðgjafar, en sérfræðingar félagsins hafa allir umfangsmikla reynslu á því sviði.
Þjónusta Virðingar á sviði fyrirtækjaráðgjafar snýr meðal annars að ráðgjöf í tengslum við kaup, sölu eða sameiningu fyrirtækja og ennfremur vegna fjármögnunar fyrirtækja, hvort sem er í tengslum við hlutafjáröflun eða lánsfjármögnun.
Fyrirtækjaráðgjöf Virðingar annast einnig umsjón með útboðslýsingum og skráningu verðbréfa í Kauphöll Íslands.
Fáðu frekari upplýsingar með því að hafa samband við okkur í síma 520-9800 eða með því að smella á fyrirspurnir hér að ofan.
