Að koma í viðskipti
Virðing er verðbréfafyrirtæki sem fyrst og fremst hefur sérhæft sig á sviði þjónustu við fagfjárfesta. Sú sérhæfing hefur skilað sérfræðingum félagsins djúpstæðri þekkingu á fjármálamörkuðunum og fjölbreyttum tegundum markaðsviðskipta, sem nýtast öllum viðskiptavinum Virðingar.
Til að hefja viðskipti hjá markaðsviðskiptum Virðingar þurfa nauðsynleg gögn að liggja fyrir.
Samkvæmt MiFid reglugerð, sem innleidd var hér á landi 1. nóvember árið 2007, ber viðskiptavini að fylla út eyðublöð þar sem hann er flokkaður annaðhvort sem almennur fjárfestir, fagfjárfestir eða viðurkenndur gagnaðili. Að auki ber viðskiptavini að veita upplýsingar um eigin fjárhagsstöðu, tengda aðila, uppruna fjármuna og fleira. Upplýsingagjöfin hefur meðal annars það að markmiði að sporna gegn mögulegu peningaþvætti.
