Markaðsviðskipti

Við leggjum áherslu á aðgengileg og hnökralaus viðskipti, samkeppnishæf kjör og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini. 


Extra Navigation

Markaðir

Markaðsviðskipti Virðingar

Virðing hf. hefur verið aðili að Nasdaq OMX á Íslandi frá árinu 1999.  Sérfræðingar markaðsviðskipta Virðingar bjóða viðskiptavinum miðlun á innlendum og erlendum verðbréfum. Þeir veita jafnframt sérhæfða og faglega upplýsingagjöf af ýmsum toga, þar sem óháð nálgun er í heiðri höfð.

Auðkenni Virðingar í viðskiptum er MEG.

Sérstaða Virðingar

Virðing hf. er sjálfstætt, óháð fjármálafyrirtæki sem á ekki í viðskiptum á fjármálamarkaði fyrir eigin fjármuni. Sú sérstaða er afar mikilvæg og ein af forsendum þess að viðskiptavinir geti treyst því að hagsmunir þeirra séu ávallt í fyrirrúmi.  

Samstarf sem skilar árangri

Í markaðsviðskiptum Virðingar er áhersla lögð á aðgengileg og hnökralaus viðskipti, samkeppnishæf kjör og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini. Sérfræðingar Virðingar búa yfir áralangri og farsælli reynslu á sviði markaðsviðskipta og eru ánægðir og traustir viðskiptavinir einn besti vitnisburður um árangur Virðingar á sínu sviði.

Fyrir hverja

Virðing er verðbréfafyrirtæki sem fyrst og fremst hefur sérhæft sig á sviði þjónustu við fagfjárfesta. Sú sérhæfing hefur skilað sérfræðingum félagsins djúpstæðri þekkingu fjármálamörkuðunum og fjölbreyttum tegundum markaðsviðskipta, sem nýtast öllum viðskiptavinum Virðingar.



Senda


Language Navigation


Leitarorð





Þetta vefsvæði byggir á Eplica