Um Virðingu

Virðing hf. er löggilt verðbréfafyrirtæki sem hefur sérhæft sig á sviði þjónustu við fagfjárfesta og stofnanafjárfesta. Meginmarkmið Virðingar eru að varðveita og ávaxta eignir viðskiptavina félagsins með það að leiðarljósi að efla fjárhagslegan styrk þeirra.


Extra Navigation


Fréttir

Framúrskarandi fyrirtæki

4.3.2011

Virðing hf. var í 76 sæti af 177 fyrirtækjum sem uppfylltu kröfur Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki.


ff_isl_red_transp

Creditinfo vann að ítarlegri greiningu  sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins.  Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 177 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem  framúrskarandi fyrirtæki.


Við valið voru síðustu þrír ársreikningar fyrirtækja lagðir til grundvallar og þurftu þau meðal annars að sýna fram á jákvæðan rekstrarhagnað og ársniðurstöðu. Sömuleiðis máttu eignir aldrei vera undir 100 milljónum og eiginfjárhlutfall aldrei minna en 20%. Einnig þurftu fyrirtækin að vera í flokki 1-3 í CIP áhættumati Creditinfo.

Senda grein

Language Navigation


Leitarorð





Þetta vefsvæði byggir á Eplica