Lagalegur fyrirvari
Lagalegur fyrirvari
Virðing byggir upplýsingarnar á vefnum á heimildum, sem fyrirtækið telur áreiðanlegar, en ábyrgist ekki að séu réttar. Virðingu er ekki skylt að uppfæra upplýsingarnar á vefnum en leitast engu að síður við að þær séu sem áreiðanlegastar á hverjum tíma. Upplýsingarnar kunna að breytast fyrirvaralaust.
Upplýsingar, sem birtar eru á vef Virðingar, fela á engan hátt í sér ráðleggingar um kaup eða sölu í tengslum við tiltekna fjármálagerninga og bera notendur vefsins einir ábyrgð á þeim fjárfestingaákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga á vefnum. Virðing kann þó að veita viðskiptavinum sínum ráðgjöf í gegnum vefinn varðandi kaup eða sölu vegna fjármálagerninga, enda kemur þá skýrt fram á vefnum að um ráðgjöf sé að ræða. Upplýsingar og ráðgjöf Virðingar á vefnum miðast ekki við ákveðin fjárfestingarmarkmið, ákveðna fjárhagsstöðu eða sérhagsmuni tiltekinna notenda. Þær eru ávallt almenns eðlis þar sem ekki er hægt að taka tillit til aðstæðna hvers og eins. Virðing ber í engum tilvikum ábyrgð á tjóni sem hljótast kann af slíkri upplýsinga- eða ráðgjöf fyrirtækisins.
Virðing ber hvorki ábyrgð á tjóni, sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef Virðingar, né heldur tjóni, sem rekja má til þess að ekki var hægt að nota vefinn, hvort sem um skemmri eða lengri tíma er að ræða.
Viðskipti á grundvelli fjármálagerninga eru mjög áhættusöm í eðli sínu. Verðbreytingar í fortíð gefa ekki endilega vísbendingu um framtíðarbreytingar. Notendur á vef Virðingar eru hvattir til að afla sér almennra upplýsinga um eðli verðbréfaviðskipta, fjárfestingamálefni, skattamál o.fl. sem tengist verðbréfaviðskiptum hjá ráðgjöfum Virðingar.
Þeir sem hafa áhuga á frekari upplýsingum um þá fjármálagerninga sem fjallað er um á vef fyrirtækisins er bent á að hafa samband við ráðgjafa Virðingar. Í einstökum tilvikum kann að vera ómögulegt að eiga þau viðskipti, sem upplýsingar eru um á vef Virðingar auk þess sem viðskipti geta verið takmörkuð við tiltekna hópa fjárfesta.
Á yfirlitum yfir fjármálagerninga viðskiptavina Virðingar tekur markaðsverðmæti ekki tillit til þóknana eða annars kostnaðar sem til fellur ef þeir verða seldir. Á yfirlitum er „markaðsgengi“ nýjasta gengi og „markaðsvirði“ verðmæti fjármálagerninga miðað við það gengi. Á hreyfingaryfirlitum er „gengi“ viðskiptagengi hreyfinga og „verð“ viðskiptaverð út frá því. Markaðsgengi fjármálagerninga sem skráðir eru í Kauphöll Íslands hf. er almennt síðasta viðskiptagengi þeirra á þinginu. Sé langt um liðið frá síðustu viðskiptum er einnig litið til hagstæðustu kauptilboða þegar markaðsverðið er metið. Virðing áskilur sér rétt til leiðréttinga á yfirlitum.
Virðing á höfundarrétt á öllum upplýsingum sem birtar eru á vef fyrirtækisins nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki Virðingar þarf til að mega endurbirta upplýsingar af vef fyrirtækisins, dreifa þeim eða afrita. Ekki skiptir máli hvers eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta þær, afrita eða dreifa. Viðskiptavinum Virðingar er þó heimilt að vista slíkar upplýsingar til einkanota.
Lagalegur fyrirvari vegna tölvupóstsendinga
Tölvupóstur með upplýsingum og eftir atvikum viðhengi, sem sendur er með netfangi í eigu Virðingar, gæti innihaldið trúnaðarupplýsingar og/eða einkamál og er eingöngu ætlaður þeim sem hann er stílaður til. Efni hans og innihald er á ábyrgð þess starfsmanns sem sendir hann tengist innihaldið ekki starfsemi Virðingar. Berist þér tölvupóstur, sem yður var ranglega sendur og eða fyrir mistök, er þess vinsamlegast farið á leit að þér gætið fyllsta trúnaðar, tilkynnið sendanda og eyðir póstssendingunni eins og skylt er skv. 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti.
Upptaka símtala, geymsla og vistun gagna
Í þeim tilgangi að tryggja öryggi viðskiptavina og Virðingar er viðskiptavini kunnugt um að viðskiptasímtöl við Virðingu kunna að vera hljóðrituð án sérstakrar tilkynningar í hvert sinn og eru slíkar símaupptökur gerðar í samræmi við heimild í lögum um fjarskipti.
Viðskiptavini er kunnugt um að hljóðupptökur kunni að vera lagðar fram í dómsmáli og/eða notaðar sem sönnunargagn í öðrum tilvikum ef upp kemur ágreiningur um hvað aðilum fór á milli, svo sem um forsendur og/eða framkvæmd viðskipta. Að öðru leyti skal Virðing meðhöndla upptökur með sambærilegum hætti og aðrar upplýsingar er lúta þagnarskyldu, sbr. 58. til 60. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Öll gögn, hverju nafni sem nefnast, sem innihalda upplýsingar um viðskipti viðskiptamanna og framkvæmd þeirra, eru vistaðir hjá Virðingu í það minnsta fimm ár.
