Reglur, skilmálar og eyðublöð
Virðing hf. er verðbréfafyrirtæki og starfar samkvæmt starfsleyfi útgefnu af Fjármálaeftirlitinu. Til þess að tryggja örugga þjónustu við viðskiptavini og eftirfylgni við gildandi lög og reglugerðir hefur félagið sjálft sett sér reglur og verkferla. Markmiðið með reglum þessum er meðal annars að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra og stuðla að bestu mögulegu framkvæmd viðskiptafyrirmæla.
Regluvörður Virðingar, Tinna Róbertsdóttir, hefur eftirlit með því að reglum félagsins sé framfylgt.
Almennir skilmálar Virðingar hf. um verðbréfaviðskipti
Skilmálar þessir gilda um öll viðskipti milli Virðingar hf. og viðskiptavinar um fjármálagerninga, eins og þeir eru skilgreindir í lögum um verðbréfaviðskipti. Undir fjármálagerninga falla þannig viðskipti með skuldabréf, hlutabréf og önnur verðbréf, peningamarkaðsskjöl hlutdeildarskírteini og afleiður.
Hagsmunaárekstrar
Tilgangur þessara reglna er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra í starfsemi Virðingar hf., auka trúverðugleika og draga úr hættu á óhlutdrægni við meðferð og afgreiðslu mála. Reglur þessar taka til viðskipta með fjármálagerninga, sbr. skilgreiningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.
Besta framkvæmd
Markmiðið með stefnu um bestu framkvæmd viðskiptafyrirmæla er að tryggja að viðskiptavinur hljóti bestu mögulegu niðurstöðu við framkvæmd viðskiptafyrirmæla. Í stefnunni er skilgreint á hvaða mörkuðum Virðing framkvæmir fyrirmæli viðskiptavina sinna, í þeim tilvikum þegar viðskiptavinir óska ekki eftir sérstakri framkvæmd viðskiptafyrirmæla. Auk þess eru þær forsendur sem starfsmenn Virðingar byggja á við framkvæmd viðskiptafyrirmæla nánar tilgreindar.
MiFid
Lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, byggja á MiFID tilskipun Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga. Markmiðið með setningu laganna var að koma á raunverulegum innri markaði með verðbréfaviðskipti, auka gegnsæi og neytendavernd fjárfesta. Í samræmi við MiFID tilskipunina ber viðskiptavini að fylla út eyðublöð þar sem hann er flokkaður annaðhvort sem almennur fjárfestir, fagfjárfestir eða viðurkenndur gagnaðili. Að auki ber viðskiptavini að veita upplýsingar um eigin fjárhagsstöðu, tengda aðila, uppruna fjármuna o.fl. Slík upplýsingagjöf er m.a. liður í að sporna við mögulegu peningaþvætti. Eyðublöðin má nálgast hér að neðan:
Vörslureikningur (VS reikningur)
Hægt er að opna vörslureikning hjá Virðingu. Við stofnun vörslureiknings tekur Virðing að sér vörslu á öllum rafrænum skuldabréfum og hlutabréfum í eigu viðskiptavinarins.
Fáðu frekari upplýsingar með því að hafa samband við okkur í síma 520-9800 eða með því að smella á fyrirspurnir hér að ofan.
