Virðing hf.
Um Virðingu hf.
Virðing hf. var stofnað árið 1999 af tveimur lífeyrissjóðum. Félagið starfar samkvæmt heimild og undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Meðal eigenda félagsins eru lífeyrissjóðir, stéttarfélög, hagsmunasamtök og einstaklingar. Félagið hefur frá upphafi rekið öfluga eignastýringu með góðum árangri og hafa margir af okkar viðskiptavinum verið með okkur frá stofnun félagsins. Viðskiptavinir Virðingar hf. eru til að mynda margir af stærstu lífeyrissjóðum landsins.
Virðing hf. er löggilt verðbréfafyrirtæki sem leggur áherslu á varðveislu og ávöxtun fjármuna viðskiptavina félagsins með það að leiðarljósi að efla fjárhagslegan styrk þeirra. Félagið býður þjónustu á sviði eignastýringar, verðbréfamiðlunar, fjármögnunar fasteigna og fyrirtækjaráðgjafar.
Gildi Virðingar eru:
Árangur
Við erum árangursdrifin og áræðin. Reynsla og þekking eru nauðsynlegir þættir til að ná árangri en forskot á markaði krefst áræðni. Við einsetjum okkur að skara ávallt fram úr.
Sjálfstæði
Öll ákvarðanataka á fyrst og fremst að þjóna hagsmunum viðskiptavina okkar. Sem sjálfstætt fyrirtæki, tryggjum við óhæði við fjárfestingaákvarðanir fyrir hönd viðskiptavina okkar.
Traust
Lykill að tilvist á fjármálamarkaði er traust og virðing. Til að viðhalda og auka traust er mikilvægt að vinna af fagmennsku, að sýna heilindi í einu og öllu og tryggja að hagur viðskiptavina sé ávallt í forgrunni.
Framtíðarsýn Virðingar er að vera fyrirmynd á markaði þar sem við einblínum á:
· Traust og trúverðugleika
· Fagleg vinnubrögð
· Sjálfstæði í hugsun og gjörðum
· Árangri í störfum og fjárhagslegan ávinning viðskiptavina og eigenda
· Góðan vinnuanda og starfsumhverfi
