
Virðing sérhæfir sig í miðlun fasteignatryggðra skuldabréfa fyrir einstaklinga, fyrirtæki og félög. Virðing hefur myndað ákveðinn farveg fyrir ráðleggingar og miðlun skuldabréfa og með ítarlegri úttekt er mögulegt að ná hagstæðri fjármögnun fyrir viðskiptavini.
Virðing getur haft milligöngu um fasteignatryggð lán til allt að 40 ára, hvort sem um er að ræða lán með veð í íbúðar- eða atvinnuhúsnæði. Vaxtakjör taka mið af heildarveðsetningu eignar, áhættumati og hvaða veðréttur er í boði.
Fasteignaviðskipti eru meðal mikilvægustu fjármálaákvarðana sem teknar eru. Oftast eru slík kaup fjármögnuð að hluta með lánum sem tryggð eru með veði í viðkomandi fasteign. Framboð á slíkum lánum hefur aukist mikið. Auk lána frá Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum, bjóða bankar og sparisjóðir nú fjölbreytt úrval mismunandi lána. Miklu skiptir að vel sé vandað til verka þegar fasteignafjármögnun er skipulögð.
Mikilvægt er að fólk leiti sér ráðgjafar hjá fagfólki í fasteignaviðskiptum. Huga þarf að þáttum eins og verðbólgu, vaxtaáhættu, gengisáhættu og veðhæfi eigna. Mikilvægt er að gera samanburð á valmöguleikum og byggja lánin upp í samræmi við markmið um eignamyndun og líklegt afborgunarhæfi. Virðing býður upp á ráðgjöf við skiplagningu fasteignafjármögnunar sem miðar að því að lágmarka vaxtakostnað og áhættu viðskiptavina. Á meðal þess sem Virðing býður upp á er aðstoð við uppgreiðsla lána, stöðumat og ráðgjöf við endurfjármögnun.