ÍslenskaEnska

Veðskuldabréfasjóður tekur til starfa

Virðing hf. hefur lokið fyrsta áfanga fjármögnunar á veðskuldabréfasjóði sem sérhæfir sig í fjármögnun á fullbúnu atvinnuhúsnæði. Nú þegar hefur verið aflað skuldbindinga fyrir 10 milljarða króna í sjóðinn en fjárfestar eru margir helstu lífeyrissjóðir landsins. Lokað verður fyrir áskriftir fjárfesta að sjóðnum með haustinu.

Sérhæfing Virðingar

Ragnar Lárus Kristjánsson, forstöðumaður veðskuldabréfamiðlunar Virðingar, segir að félagið hafi lengi sérhæft sig í miðlun fasteignatryggðra skuldabréfa fyrir einstaklinga, fyrirtæki og félög. „Við höfum um 10 ára reynslu á þessu sviði og sjáum ekki annað en að þessi markaður verði gróskumikill á komandi misserum.“

Fjármögnun á atvinnuhúsnæði

Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing er lokaður fagfjárfestasjóður rekinn af Rekstrarfélagi verðbréfasjóða ÍV. Sjóðurinn fjármagnar fullbúið atvinnuhúsnæði með löngum verðtryggðum skuldabréfum og veitir fjárfestum því aðgang að vel dreifðu safni veðskuldabréfa. Fjárfestingarráð sjóðsins skipa Baldur Vilhjálmsson, sjóðsstjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins, Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Stafa og Friðjón Rúnar Sigurðsson. Friðjón verður formaður fjárfestingarráðsins en hann hefur 15 ára reynslu í rekstri lífeyrissjóða og annarra sjóða.

Rétti tíminn fyrir sjóðinn

Friðjón Rúnar telur að nú, þegar aðgengi að lánsfjármagni er erfitt, sé rétti tíminn til að fara af stað með þennan sjóð. „Viðtökurnar til þessa hafa verið góðar og við erum bjartsýn á að fleiri fjárfestar bætist í hópinn á næstu mánuðum.“

Stefna sjóðsins

Fjárfestingarstefna

  • Skuldabréf með tryggingu í eignum
    skráðum hjá FMR
  • Veðandlag sé traust og seljanlegt
  • Heimild til að fjárfesta
    utan höfuðborgarsvæðis
  • Veðsetningarhlutfall skal að
    hámarki vera 65%

Ávinningur

  • Löng verðtryggð skuldabréf
  • Hærri ávöxtun á skuldabréfasafn
  • Áhættudreifing með sjóðamyndun
  • Fjölbreyttara verðbréfasafn
  • Regluleg upplýsingagjöf
  • Virk sjóðstýring og eftirfylgni
© 2008    | Virðing hf    |    Borgartúni 30    |    3.hæð    |    105 Reykjavík   |    Sími: 520 9800    |     Fax: 520 9801    |     Netfang: virding@virding.is    |    Vefhönnun: Emstrur