
Virðing er þingaðili að Kauphöll Íslands. Þar sem félagið er þingaðili geta starfsmenn Virðingar sett fram kaup- og sölutilboð fyrir hönd viðskiptavina í þau verðbréf sem skráð eru í Kauphöllinni. Þingaðilar geta einir sett fram tilboð, m.a. fyrir viðskiptavini sína og átt viðskipti í viðskiptakerfinu. Auðkenni Virðingar í viðskiptum er MEG.
Eftir að Kauphöll Íslands sameinaðist OMX hefur Virðing litið á OMX kauphöllina sem sinn heimamarkað og haft milligöngu um miðlun fyrir viðskiptavini sína í henni. Miðlun Virðingar getur einnig haft milligöngu um viðskipti í öðrum kauphöllum.
Kauphöll Íslands hefur eftirlit með því að útgefendur skráðra verðbréfa og kauphallaraðilar fylgi þeim lögum og reglum sem gilda um markaðinn. Kauphöll Íslands er skipulagður verðbréfamarkaður, þar sem opinber skráning verðbréfa fer fram svo og viðskipti með þau. Í því skyni rekur Kauphöllin rafrænt viðskiptakerfi (SAXESS), þar sem tilboð í verðbréf eru sett fram í tilboðabók.